Fara í efni
Fréttir

Varabæjarfulltrúi hættir í Miðflokknum

Rósa Njálsdóttir, varabæjarfulltrúi á Akureyri, hefur sagt sig úr Miðflokknum og tilkynnt um úrsögn sína úr stjórnum og ráðum á vegum bæjarins.

„Mín lífsgildi, sýn og skoðanir á pólitík fara einfaldlega ekki lengur saman með Miðflokknum og því hef ég ákveðið að stíga til hliðar,“ segir Rósa við Akureyri.net. Hún vill ekki tjá sig frekar um málið.