Fréttir
Vara við hættulegum selskóp á Pollinum
06.05.2026 kl. 19:40
Rólegir selir á góðri stund - ekki þeir sem eru á Pollinum i dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Lögreglan varar fólk við blöðruselskóp sem hefur verið á Pollinum í dag. Hann getur verið hættulegur fólki, bæði getur hann bitið og verið með bakteríur sem geta reynst hættulegar fólki.
Eftirfarandi birtist á Facebook síðu lögreglunnar í kvöld:
Eins og margir bæjarbúar hafa séð hefur orðið vart við seli í dag við Pollinn og einn þeirra er kominn á land.
Við viljum vekja sérstaka athygli á því að nálgast ekki selinn, um er að ræða blöðruselskóp sem getur verið hættulegur fólki og bitið en hann getur einnig verið með bakteríur sem geta verið hættulegar fólki.
Fjarlægð skal vera að lámarki 100 metrar og því hefur svæðið verið girt af. Lögreglan hefur verið í sambandi við atferlisvistfræðing hjá Selasetrinu, MAST ofl. aðila sem viðkoma dýraeftirlitsmálum. Vonast er til að hann haldi ferðalagi sínu áfram eftir að hann nái smá hvíld á landi.
Vekjum athygli á upplýsingum sem Selasetrið deildi með okkur.
