Fréttir
Vara við fíkniefninu Kratom – Fundu 60 kg
26.02.2026 kl. 14:45
Nýlega var hald lagt á tæp 60 kg af fíkniefninu Kratom í tveimur aðskildum málum á Norðurlandi eystra. Efnið er lítt þekkt hér á landi en lögreglan varar við notkun efnisins.
Eftirfarandi tilkynning á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í dag:
Í samvinnu við tollinn hefur lögreglan á Norðurlandi eystra nýlega lagt hald á tæp 60 kg af fíkniefninu Kratom í tveimur aðskildum málum. Kratom er lítt þekkt á Íslandi.
Virka efnið í Kratom er mítragýnin. Efnið hefur bæði örvandi áhrif en jafnframt deyfandi í stærri skömmtum. Kratom duft er grænt að lit og líkist grænu te og fæðubótarefni. Kratom kemur frá plöntunni Mitragyna speciosa sem á uppruna sinn í suðaustur Asíu.
Kratom er fíkniefni og er ólöglegt á íslensku forráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni. Lögreglan varar fólk við notkun efnisins en upplýsingar erlendis frá bera með sér að efnið sé þar jafnvel selt fólki ranglega sem fæðubótarefni eða náttúrulyf. Efnið getur verið enn skaðlegra sé það notað með öðrum vímugjöfum.