Fara í efni
Fréttir

Valsarar léku sér að KA-mönnum

Mynd: Ármann Hinrik

Deildarmeistarar Vals léku sér að KA-mönnum eins og köttur að mús þegar liðin mættust í fyrsta leik undanúrslita Íslandsmótsins í handbolta í Reykjavík í kvöld, sunnudagskvöld. Lokatölur urðu 39:21; þetta er því miður ekki prentvilla – 18 mörkum munaði í leikslok. Staðan í hálfleik var 17:9, Valsmenn gerðu því 22 mörk í seinni hálfleik en KA-strákarnir 12. 

Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitaeinvígið, liðin mætast næst í KA-heimilinu á fimmtudagskvöldið og þriðja viðureignin verður í Valsheimilinu (N1 höllinni) mánudagskvöldið 13. apríl. Komi til fjórða leiks verður hann í KA-heimilinu fimmtudaginn 16. apríl og sá fimmti, ef með þarf, verður í N1 höll Vals sunnudag 19. apríl.

KA-menn byrjuðu ágætlega og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður munaði einu marki á liðunum, staðan þá 6:5 fyrir Val, en 10 mínútum síðar höfðu Valsmenn bætt 10 mörkum við en KA-menn aðeins þremur; staðan þá orðin 16:8.

Tölfræðin talar sínu máli og ekki ástæða til að tíunda gang mála. KA-menn gátu þakkað markverði sínum, Ágúst Elí Björgvinssyni, að ekki munaði nema átta mörkum í hálfleik því hann varði mjög vel framan af. Svo var eins og slökknaði á honum þegar leið á og ekki að undra því  hann fékk litla sem enga aðstoð frá vörninni. Sóknaraðgerðir KA-manna voru líka alltof oft hreinlega afleitar; þeir náðu aldrei almennilegum takti í sókninni.

Stórskyttan Bjarni Ófeigur Valdimarsson sem glímdi við meiðsli um tíma virðist ekki ganga heill til skógar og liðið má ekki við því. Hann gerði eitt mark í dag úr fjórum skotum og skapaði tvö færi með sendingum. Í stuttu máli má segja að enginn hafi leikið af eðlilegri getu og vonandi var frammistaðan í dag slys sem endurtekur sig ekki. Ekki er hægt að horfa framhjá því að Valsmenn léku mjög vel, bæði í vörn og sókn auk þess sem Björgvin Páll Gústavsson var frábær í markinu – en það verður að segjast eins og er að sum skotanna sem hann varði voru afar slök; KA-menn virtust ekki hafa mikla trú á því sem gerðu.

Dagurinn var KA-mönnum einnig erfiður utan vallar. Vegna slæmrar veðurspár héldu þeir af stað eldsnemma í morgun, komust langleiðina án vandræða en þegar ekið var upp úr Hvalfjarðargöngunum var verið að loka veginum um Kjalarnes og þar beið rúta þeirra í um það bil eina klukkustund. Nægur tími var til stefnu en biðin, og óvissan sem henni fylgdi, hafði í það minnsta ekki góð áhrif.

Í stuttu máli sagt: afleit frammistaða KA að nánast öllu leyti, en ef horft er á jákvæðu hliðina þá er útilokað að liðið leiki verr. Leiðin getur ekki annað en legið upp á við. Þegar á leið tók Andri Snær þjálfari lykilleikmenn af velli og leyfði öðrum að spreyta sig sem var skynsamlegt enda löngu ljóst að Valsmenn ynnu sigur. KA-liðið getur miklu betur en í dag, strákarnir gyrða sig vonandi í brók og mæta galvaskir til leiks á fimmtudag. Þeir eru þekktir fyrir að gefast ekki upp, sem átti reyndar varla við í dag, en nái þeir að sýna sitt rétt andlit fyrir troðfullu húsi stuðningsmanna, verður vonandi annað upp á teningnum næst.

Mörk KA: Jens Bragi Bergþórsson 5, Magnús Dagur Jónatansson 4, Dagur Gautason 3, Patrekur Stefánsson 2, Einar Rafn Eiðsson 2 (bæði úr víti), Bjarni Ófeigur Valdimarsson 1, Arnór Ísak Haddsson 1, Logi Gautason 1, Einar Birgir Stefánsson 1, Aron Daði Stefánsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 12, þar af 1 víti (28,6%), Bruno Bernat 4 (30,8%).

Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 8, Arnór Snær Óskarsson 7 (þar af 2 úr víti), Andri Finnsson 6, Þorgils Jón Svölu Baldursson 4, Bjarni I Selvindi 3, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 3, Dagur Leó Fannarsson 2, Dagur Árni Heimisson 2 (annað úr víti), Agnar Smári Jónsson 1, Daníel Örn Guðmundsson 1, Magnús Óli Magnússon 1, Allan Norðberg 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17, þar af 3 víti (54,8%), Jens Sigurðarson 5 (45,5%).

Öll tölfræði leiksins frá HB Statz

Leikskýrslan á vef HSÍ