Fara í efni
Fréttir

Uppselt í Hlíðarfjall í dag og á morgun!

Líf og fjör í Hlíðarfjalli. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Uppselt er á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli í dag og á morgun, föstudag og laugardag, sem og fyrripart sunnudags. Nokkrir miðar eru lausir í seinna hólfið á sunnudag. Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Vegna fjöldatakmarkana mega aðeins um 25% af hámarksfjölda vera í Hlíðarfjalli hverju sinni og hefur dögunum verið skipt í tvö þriggja tíma hólf, annarsvegar frá klukkan 10 til 13 og hins vegar klukkan 14 til 17. Seldir eru 600 miðar í hvort hólf en þar fyrir utan eru þeir sem eiga vetrarkort velkomnir. Góð veðurspá er fyrir helgina.

Framundan eru vetrarfrí í grunnskólum landsins og ljóst að það verður eftirsótt að komast á skíði eða stunda aðra útivist í Hlíðarfjalli. Stefnt er að því að lengja opnunartímann frá 17. febrúar og verða miðar fyrir næstu helgi og dagana þar í kring settir í sölu á allra næstu dögum.