Fara í efni
Fréttir

Upplýsingamiðstöð opnuð á ný í Hofi

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Upplýsingamiðstöðin í Hofi hefur verið opnuð aftur eftir nokkurt hlé. Fyrsta kastið verður opið þar alla virka daga frá klukkan 8 til 16 en í bígerð er að hafa einnig afgreiðslutíma um helgar þegar líður á sumarið. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

„Nýja upplýsingmiðstöðin veitir fyrst og fremst upplýsingar um Akureyri, Grímsey og Hrísey. Þar verða kort og bæklingar um bæinn og eyjarnar tvær en einnig bæklingar sem ná yfir allt Ísland. Ferðaþjónustuaðilum í næsta nágrenni við Akureyri er boðið að koma með bæklinga í upplýsingamiðstöðina en plássið er mjög takmarkað og því verður ekki hægt að bjóða fyrirtækjum í sveitarfélögum sem liggja fjær Akureyri að vera með efni þar,“ segir á vef bæjarins.

„Það eru Akureyrarhöfn, Menningarfélag Akureyrar, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar en ríkið hætti sem kunnugt er stuðningi við reksturinn fyrir um tveim árum og hefur starfsemin legið niðri af þeim sökum.“