Fara í efni
Fréttir

Unnið að snjómokstri víða um bæinn

Mynd af vef Akureyrarbæjar

Snjóþyngsli eru töluverð á Akureyri húsagötur víða jafnvel illfærar ökutækjum. Unnið er að snjómokstri á stofn- og tengibrautum ásamt íbúðagötum og er stefnt að því að ryðja allar götur fyrir páska, að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins.

Góðu veðri er spáð um um helgina og ekki gert ráð fyrir mikilli ofankomu. „Snjórinn sem fallið hefur síðustu daga er hins vegar blautur og þungur, sem gerir hreinsun gatna og stíga tímafrekari en oft áður,“ segir á vef bæjarins.

„Athygli er vakin á því að mikil hálka getur myndast á gangstéttum og göngustígum eftir snjóhreinsun þegar hitastig er í kringum frostmark. Þá myndast gjarnan örþunn ísfilma sem getur verið varasöm, þótt hún bráðni fljótt ef hlýnar. Gangandi vegfarendur eru því beðnir um að sýna sérstaka aðgát.“

Smelltu hér til að skoða upplýsingar um vetrarþjónustu Akureyrarbæjar og vinnureglur sem gilda um snjómokstur.