Fara í efni
Fréttir

Unnar Vilhjálmsson sæmdur fálkaorðunni

Hópurinn sem sæmdur var fálkaorðunni á Bessastöðum í dag ásamt Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Unnar Vilhjálmsson er sjötti frá vinstri. Mynd af vef embættis forseta Íslands.

Unnar Vilhjálmsson, frjálsíþróttaþjálfari og kennari á Akureyri, var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu  fyrir framlag til íþrótta- og félagsstarfa með börnum. Hann var í hópi 15 Íslendinga sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, sæmdi orðunni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Eftirfaldir fengu fálkaorðuna í dag:

  • Albert Eymundsson, fyrrverandi skólastjóri, fyrir framlag til mennta-, íþrótta- og ungmennafélagsstarfa í heimabyggð
  • Andrea Þórunn Björnsdóttir, sjálfboðaliði í samfélagsþágu, fyrir framlag til góðgerðarmála og samfélags
  • Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur, fyrir framlag til varðveislu, rannsóknar og miðlunar íslenskrar tónlistarsögu
  • Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og lýðheilsufræðingur, fyrir brautryðjandastarf á sviði lýðheilsu og velsældar á Íslandi
  • Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og rauðsokka, fyrir störf í þágu jafnréttis og kvennabaráttu
  • Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur, fyrir störf í þágu sjálfbærni, jafnréttis- og mannúðarmála
  • Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur, fyrir forystustörf í öryggisvörnum vegna jarðelda
  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, fyrir störf í þágu fjölmenningar og þolenda kynbundins ofbeldis
  • Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri frístundamála, fyrir brautryðjanda- og forvarnarstörf í þágu velferðar barna
  • Unnar Vilhjálmsson, frjálsíþróttaþjálfari og kennari, fyrir framlag til íþrótta- og félagsstarfa með börnum
  • Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og höfundur, fyrir framlag til leiklistar og samfélagsmála
  • Vilborg Guðbjörg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur, fyrir framlag til geðheilbrigðismála barna, unglinga og fjölskyldna
  • Þorlákur Hilmar Morthens myndlistarmaður, fyrir sjálfboðastörf í þágu endurhæfingar fanga
  • Þorsteinn Loftsson, prófessor emeritus í lyfjafræði, fyrir frumkvöðlastarf í lyfjavísindum og nýsköpun
  • Þórður Þórkelsson barnalæknir, fyrir framlag til nýburalækninga og barnagjörgæslu