Fara í efni
Fréttir

Ungur maður varð fyrir bíl og lést

Banaslys varð við Framhaldsskólann á Laugum í dag þegar 19 ára karlmaður varð fyrir bíl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Tilkynningin er svohljóðandi:

„Kl. 14:03 í dag barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að slys hefði orðið við Framhaldsskólann á Laugum. Þar hefði 19 ára karlmaður orðið fyrir bíl. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Nokkrir nemendur úr skólanum urðu vitni að slysinu og hefur áfallahjálparteymi Rauða krossins verið virkjað til að hlúa að þeim. Rannsókn á tildrögum slyssins er á algjöru frumstigi og vettvangsrannsókn enn yfirstandandi þegar þetta er skráð. Lögreglan getur því ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo komnu.“