Fara í efni
Fréttir

Umsóknum um nám við HA fjölgar um 8,5%

Háskólinn á Akureyri. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri (HA) hefur fjölgað um 8,5 prósent frá fyrra ári. Alls bárust 2.343 umsóknir fyrir haustmisseri 2026, sem er einn mesti umsóknafjöldi í sögu skólans. Mesta aukningin er á meistarastigi þar sem umsóknum fjölgaði um tæp 88 prósent milli ára. Þar munar mest um aukinn áhuga á námi við kennaradeild, lagadeild og viðskiptadeild.

Í fréttatilkynningu frá HA segir Áslaug Ásgeirsdóttir rektor umsóknartölurnar endurspegla það orðspor sem skólinn hafi byggt upp í gegnum árin. Hún telur þær jafnframt staðfesta mikilvægt hlutverk háskólans í menntun og samfélagsþróun bæði á Norðurlandi og landsvísu.

329 umsóknir um BS-nám í hjúkrunarfræði

Áfram er mikill áhugi á heilbrigðisvísindum við skólann. Hjúkrunarfræðideild bárust 464 umsóknir í ár samanborið við 419 árið áður, sem jafngildir 10,7 prósenta fjölgun. BS-nám í hjúkrunarfræði er þar með áfram meðal vinsælustu námsleiða skólans. Sérstaka athygli vekur að 329 einstaklingar sóttu um inngöngu í BS-námið í hjúkrunarfræði þrátt fyrir að aðeins 75 nemendur geti haldið áfram námi að loknu fyrsta misseri. Að sögn rektors undirstrikar það þörfina fyrir frekari uppbyggingu kennsluaðstöðu, meðal annars með fullbúnu hermisetri sem gæti aukið möguleika skólans til að taka við fleiri nemendum. „Það leikur enginn vafi á því hve mikilvægt það er fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi,“ er haft eftir Áslaugu í fréttatilkynningunni.

Í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á BS-nám í lagareldi við auðlindadeild í samstarfi við Háskólann á Hólum. Alls bárust 28 umsóknir í nýju námsleiðina. Forsvarsmenn skólans telja umsóknarfjöldann sýna að námið mæti skýrri þörf í atvinnulífinu, enda hefur lagareldi vaxið hratt á Íslandi á undanförnum árum.

Áfram fjölgun í kennaradeild

Umsóknum í kennaradeild fjölgaði um 19,3% sem skólinn segir áhugavert í ljósi þess að í fyrra var metfjöldi sem sótti um nám við deildina þegar umsóknum fjölgaði um 30%. Aukningin er sögð sérlega ánægjuleg í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um þörfina fyrir fleiri kennara á öllum skólastigum. Kennaranám við Háskólann á Akureyri gegni mikilvægu hlutverki í menntun kennara um allt land og benda umsóknartölur til þess að áhugi á faginu fari vaxandi.

Þá hefur umsóknum í iðjuþjálfunarfræði einnig fjölgað verulega, eða um rúm 42 prósent frá fyrra ári. Skólinn rekur aukninguna meðal annars til áframhaldandi þróunar námsins og námsumhverfisins.