Fara í efni
Fréttir

Umsóknum um aðstoð fyrir jól fjölgar um 30%

Umsókn um jólaaðstoð barst frá 400 heimilum í Eyjafirði að þessu sinni, samanborið við 309 á síðasta ári. „Þetta er 30% aukning á milli ára og við gerum ráð fyrir að finna enn meiri aukningu jafnt og þétt á næsta ári,“ segir Sigríður M. Jóhannsdóttir, formaður Velferðarsjóðs - áður Jólaaðstoðar - í tilkynningu. „Það hefur þó gengið vel að fjármagna og margir velunnarar okkar hafa lagt fjáröfluninni lið, sem gerir það að verkum að þetta gengur þrátt fyrir aukna eftirspurn.“

Frá árinu 2013 hafa Mæðrastyrksnefnd Akureyrar og nágrennis, Hjálpræðisherinn á Akureyri, Rauði krossinn við Eyjafjörð og Hjálparstarf kirkjunnar starfað saman um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Samstarfið hefur gengið vel og gert það að verkum að hægt hefur verið að styðja einstaklinga og fjölskyldur á svæðinu með veglegri hætti en áður. Nú hefur verið ákveðið að stíga skrefi lengra og hafa samstarfið á ársgrundvelli. Heitið breytist því úr Jólaaðstoð í Velferðarsjóður. „Með þessari breytingu er vonast til að einfaldara verði að leita sér aðstoðar allan ársins hring og að betur sé hægt að halda utan um upplýsingar um þörfina í samfélaginu. Starfssvæði sjóðsins er Eyjafjörður, frá Siglufirði til Grenivíkur.“

  • Þeim sem hafa áhuga á að styrkja Velferðarsjóð er bent á reikninginn 0302-13-175063, kt. 460577-0209.