Umgjörð sjálfstæðra rannsakenda styrkt
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur gert þriggja ára samstarfssamning við Akureyrarakademíuna. Markmið samningsins er m.a. að styrkja umgjörð sjálfstæðra rannsakenda auk þess að efla þekkingardrifna starfsemi og fræðastarf.
„Akureyrarakademían og þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneyti undirrituðu samstarfssamning árið 2015 sem gilti út árið 2017, en eftir það hafa verið gerðir árlegir viðaukar um framlengingu samstarfsins. Akureyrarakademían fellur nú undir málefnasvið menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, eins og önnur fræða- og þekkingarsetur í landinu, sem og háskólastofnanir,“ segir í tilkynningu frá AkureyrarAkademíunni.
Með samningnum við Akureyrarakademíuna mun ráðuneytið styðja við rekstur vinnurýmis og samstarfsvettvangs sjálfstæðra rannsakenda, frumkvöðla, háskólanema og fleiri. Jafnframt verður lögð áhersla á miðlun rannsókna og fræða til samfélagsins með viðburðum, útgáfu og stafrænni miðlun.
„Samningurinn styður við stefnumörkun stjórnvalda um eflingu rannsókna, nýsköpunar og háskólastarfs um land allt. Samningurinn undirstrikar jafnframt mikilvægi Akureyrar sem samkeppnishæfrar svæðisborgar og aðsetur öflugs þekkingar- og rannsóknaseturs,“ segir í tilkynningunni.

Samningurinn handsalaður: Logi Már Einarsson ráðherra menningar-, nýsköpunar- og háskóla, og Aðalheiður Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar.