Fara í efni
Fréttir

Umferðartafir milli Dalvíkur og Akureyrar vegna slyss

Frá Fiskidagstónleikunum á Dalvík í kvöld. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
Umferðarslys varð á Ólafsfjarðarvegi við Kambhól í kvöld og fólk má eiga von á umferðartöfum af þeim sökum. Fiskidagstónleikum og flugeldasýningu lauk á Dalvík um hálf eitt leytið, gríðarlegur fjöldi fólks var í bænum og því von á mjög mikilli umferð til Akureyrar. Lögreglan getur ekki veitt nánari upplýsingar þannig að ekki er vitað hvenær búast megi við að umferð komist í eðlilegt horf á nýjan leik.
 
 
KLUKKAN 2.00 - Mörg hundruð bílar silast á milli Dalvíkur og slysstaðarins við Kambhól, sem er steinsnar frá bænum Fagraskógi. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsso