Fara í efni
Fréttir

Umferðarljós biluð – truflanir fram eftir degi

Mynd: Rakel Hinriksdóttir
Umferðarljós á gatnamótum Glerárgötu og Tryggvabrautar eru biluð og ljósastýringin virkar því ekki. „Unnið er að viðgerð en viðbúið er að truflanir verði á þessu fram eftir degi samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ,“ segir í tilkynningu á vef lögreglunnar. „Í ljósi þessa beinum við því til ökumanna að fara varlega, sýna tillit og fara eftir þeim umferðarmerkjum sem eru til staðar,“ segir þar.
 
Undanfarnar vikur hefur reglulega verið slökkt á umræddum ljósum. Glerárgata er hluti þjóðvegar 1 og gatnamótin – sem sjá má á mynd Þorgeirs Baldurssonar hér fyrir neðan – ein þau allra fjölförnustu í bænum eftir því sem næst verður komist, gott ef ekki efst á þeim lista.
 


Mynd: Þorgeir Baldursson