Um 3.500 Akureyringar kosið utan kjörfundar
Um 3.500 kjósendur með lögheimili á Akureyri höfðu greitt atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um land allt um miðjan dag í dag. Við lokun í gær höfðu 2.989 greitt atkvæði og kl. 15 í dag höfðu um 500 bæst við.
Áfram verður opið fyrir kosningu utan kjörfundar í Strandgötu 1 (gamla Landsbankahúsinu) á morgun kl. 10-17, en einungis fyrir kjósendur á kjörskrá annars staðar því kjörfundur Akureyringa verður í Verkmenntaskólanum á Akureyri og verður kjörstaður opinn frá kl. 9 í fyrramálið til kl. 22 annað kvöld.
Eins og áður hefur komið fram er Akureyrarkaupstað skipt í 12 kjördeildir, þar af eru tíu í VMA, ein í Hríseyjarskóla og ein í Félagsheimilinu Múla í Grímsey. Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 22. júlí 2026. Hægt er að fletta upp í kjörskrá á vef Þjóðskrár á slóðinni: www.kosning.is.
Kjósendum í Hrísey og Grímsey er bent á að kjörstað kann að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 17.00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða þó að lágmarki opnir til kl. 17.30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.