Fara í efni
Fréttir

Um 1300 mættu í fögnuð Íslenska gámafélagsins

Emmsjé Gauti var einn þeirra listamanna sem komu fram hjá Íslenska gámafélaginu á föstudaginn. Myndir: Íslenska gámafélagið

Hátt í 1300 manns mættu í fögnuð sem Íslenska gámafélagið bauð til á föstudaginn í tilefni þess að félagið opnaði starfsstöð að Ægisnesi 3 á Akureyri í dag, mánudag. „Fyrirtækjum á Norðurlandi var boðið í glæsilegt opnunarpartý og mætingin fór fram úr björtustu vonum. Nýjum og glæsilegum húsakynnum sem munu framvegis vinna sorp frá fyrirtækjum og heimilum á Norðurlandi var breytt í risavaxinn skemmtistað,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Boðið var upp á sætaferðir víða af Norðurlandi og heim aftur.

Mikill umhverfislegur ávinningur

Með opnun starfsstöðvar Íslenska gámafélagsins hefst í fyrsta skipti útflutningur á almennum heimilisúrgangi beint frá Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins. „Úrgangurinn mun fara til endurvinnslu og orkunýtingar í Evrópu í stað urðunar á Sölvabakka. Af þessu hlýst mikill umhverfislegur ávinningur þar sem orkan er nýtt til kyndingar á heimilum í Evrópu. Á árinu verður einnig ný vinnslulína fyrir gler sett upp á svæðinu þar sem að allt umbúðagler verður meðhöndlað og er það einnig í fyrsta skipti sem slíkt er gert á Norðurlandi.“

Jón Þórir Frantzson forstjóri Íslenska gámafélagsins kveðst spenntur fyrir komandi tímum ,,Við hlökkum til að kynnast norðlenskum fyrirtækjum betur og viljum gera okkar besta til að veita framúrskarandi þjónustu í sorphirðu og úrgangsmálum á Norðurlandi. Með bættri aðstöðu okkar á Akureyri og samstilltu átaki mun okkur takast að draga mikið úr þeim umhverfisáhrifum sem urðun úrgangs hefur í för með sér,“ segir hann.

Forstjórinn ávarpaði gesti í upphafi og Karlakór Akureyrar - Geysir og Lúðrasveit Akureyrar skemmtu gestum. „Síðan stigu á svið margir af stærstu listamönnum þjóðarinnar. Þau Birgitta Haukdal, Emmsjé Gauti, Daníel Ágúst, Úlfur Úlfur og Stuðlabandið skemmtu gestum. Norðlendingar kunna að skemmta sér og framreiða glæsilegar veitingar enda var boðið upp á ljúfmeti frá Bautanum og Rub23. Gestir gæddu sér á gómsætum drykkjum ásamt því að Bæjarins bestu voru líka á svæðinu fyrir þá sem vildu eina með öllu.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á föstudaginn.