Fara í efni
Fréttir

Tveir slasaðir eftir snjóflóð í Svarfaðardal

Tveir menn slösuðust í snjóflóði í Svarfaðardal í kvöld. Þrír voru þar á ferð, allir af erlendu bergi brotnir. Annar hinna slösuðu verður fluttur með þyrlu á Sjúkrahúsið á Akureyri en hinir tveir fara þangað í sjúkrabíl. Þetta kemur fram á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Allir þrír lentu í flóðinu, sem féll fyrir ofan bæinn Skeið, en einn þeirra náði að hringja í Neyðarlínuna. Þá var klukkan 19.10. „Þegar var kallað út mikið lið viðbragðsaðila og aðgerðarstjórn virkjuð á Akureyri. Virkjuð var hópslysaáætlun almannavarna og óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar á vettvang. Þegar fyrstu viðbragðsaðilar komu á vettvang kl. 19:55 fundu þeir strax tvo menn og var annar þeirra slasaður. Stuttu seinna fannst sá þriðji í jaðri flóðsins og var hann einnig slasaður,“ sagði í fyrstu færslu á síðu lögreglunnar.

Fyrir skömmu var síðan upplýst að þyrla Landhelgisgæslunnar, m.a. með tvo lækna innanborðs, hefði lent skammt frá slysstaðnum um kl. 21.10 og muni flytja annan þeirra slösuðu á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. Hinir tveir verði fluttir þangað með sjúkrabifreiðum.

Viðbót laust fyrir miðnætti - Annar hinna slösuðu var fluttur með sjúkraflugi á Landspítalann. „Um er að ræða bandaríska ferðamenn sem eru sagðir vera vanir útivistar og fjallamenn. Frekari upplýsingar um málsatvik liggja ekki fyrir að svo komnu en rannsókn heldur áfram í fyrramálið,“ segir þá á Facebook síðu lögreglunnar.