Fara í efni
Fréttir

„Tungumálið er lykill að samfélaginu“

Bethsanda Rún Arnarson við upphaf kröfugöngunnar á Akureyri í gær, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Ég áttaði mig snemma á því að tungumálið er lykillinn að samfélaginu. Ég hef frá fyrsta degi lagt mig fram um að læra tungumálið og vil segja við ykkur, sem innfædd eruð, að þið eruð mörg allt of fljót á ykkur að skipta yfir í ensku við okkur sem erum aðflutt.“

Þetta sagði Bethsanda Rún Arnarson meðal annars þegar hún flutti ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna á hátíðarfundi í Hofi í gær, á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks. Bethsanda, sem er frá Filipseyjum, hefur búið á Akureyri í liðlega þrjá áratugi, hún er trúnaðarmaður til margra ára, er varaformaður Matvæla- og þjónustudeildar verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju og stjórnarkona í verkalýðsfélaginu.

Bethsanda sagði frá því hvernig hún rann á rassinn þegar hún steig fyrst niður fæti á Akureyrarflugvelli og seinna hefði hún lært málsháttinn Fall er fararheill, sem hefði heldur betur sannast á sér. Á Akureyri hefði hún kynnst manninum sínum, þau hefðu verið gift í meira en þrjátíu ár og ættu yndislega fjölskyldu. Hún elskaði Ísland og vildi hvergi annars staðar búa. Hér væri frábært að búa og frábært að starfa.

 

Ávarpið er svohljóðandi í heild:

Fundarstjóri, félagar – aðrir góðir gestir.

Mér er það mikill heiður að standa hér í dag og ávarpa ykkur.

Þann 12. janúar 1993 – fyrir rúmum þrjátíu og tveimur árum – flaug ég í lítilli flugvél frá Keflavík til Akureyrar, nýkomin til landsins frá heimalandi mínu, Filippseyjum.

Ég steig út úr vélinni á Akureyrarflugvelli – og rann beint á rassinn. Það var snjór og hálka og ég hafði aldrei á ævi minni séð snjó. Þar að auki var ég í skóm sem eru alls ekki hannaðir fyrir snjó.

Einhver góður maður hjálpaði mér að standa á fætur og studdi mig alla leið inn í flugstöðina.

Og hér stend ég öllum þessum árum síðar. Ég hef unnið hjá ÚA í þrjátíu og tvö ár – með tveggja ára hléi – en þá vann ég sem starfsstúlka á SAk.

Ég áttaði mig snemma á því að tungumálið er lykillinn að samfélaginu. Ég hef frá fyrsta degi lagt mig fram um að læra tungumálið og vil segja við ykkur, sem innfædd eruð, að þið eruð mörg allt of fljót á ykkur að skipta yfir í ensku við okkur sem erum aðflutt.

TÖLUM ÍSLENSKU, gott fólk! Tölum bara aðeins hægar og endurtökum það sem þarf að endurtaka.

Ég hvet alla sem flytja hingað til að fara á íslenskunámskeið. Það er frábær leið til að læra tungumálið og kynnast um leið öðrum sem eru í sömu sporum og maður sjálfur. Tungumálið er vissulega lykillinn að SVO mörgu.

Ég hef verið trúnaðarmaður í ÚA í nokkur ár og er núverandi varaformaður Matvæla- og þjónustudeildar Einingar-Iðju. Í gegnum félagsstarfið hef ég meðal annars setið stjórnendaráðstefnu Starfsgreina-sambandsins, ASÍ-þing og kvennaráðstefnu.

Sú reynsla er ómetanleg.

Ég vil hvetja konur og karla af erlendum uppruna til að taka virkan þátt í félagsstarfinu, sækja fundi og fylgjast með því sem er að gerast. Tökum líka virkan þátt í því sem er að gerast í samfélaginu öllu. Þannig aðlögumst við best og verðum hluti af hópnum.

Við þurfum öll að kunna að lesa launaseðilinn okkar og þekkja réttindi okkar. Verum dugleg að fara inn á heimsíðu stéttarfélagsins okkar og lesa skilaboðin sem þar eru. Þau eru á mörgum tungumálum og þau eru mjög mikilvæg.

Kynþáttafordómar eru vaxandi vandamál í heiminum. Ég hef fundið fyrir þeim alla tíð, enda verða rasistar sennilega alltaf hluti af tilveru okkar.

Við þurfum öll að vera vakandi gagnvart slíkum fordómum og vinna gegn þeim með öllum ráðum.

Góðir gestir.

Ég sagði ykkur í upphafi ræðu minnar hvernig ég rann á rassinn á Akureyrarflugvelli um árið. Löngu seinna lærði ég málsháttinn: Fall er fararheill.

Hann þýðir að það að detta í byrjun ferðar sé til marks um að ferðin verði góð. Það hefur heldur betur sannast á mér.

Hér á Akureyri kynntist ég manninum mínum. Við höfum verið gift í meira en þrjátíu ár og eigum yndislega fjölskyldu.

Hér búa líka systur mínar, bróðir minn, frænka mín og maðurinn hennar en þau hjálpuðu mér til að komast til Íslands fyrir öllum þessum árum.

Ég elska Ísland og vil hvergi annars staðar búa.

Ég elska hreina loftið og vatnið.

Ég elska náttúruna og ég elska öryggið.

Hér er frábært að eiga heima. Hér er frábært að starfa. Ég hvet alla í verkalýðshreyfingunni til að taka virkan þátt í félagsstarfinu – hvað svo sem félagið heitir.

Við getum verið stolt af félaginu okkar og þurfum að gera allt sem við getum til að það eflist og dafni.

Kæru félagsmenn.

Til hamingju með daginn!

Til hamingju með okkur!