Tryggvi Gíslason fv. skólameistari látinn
Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er látinn. Hann var fæddur í húsi foreldra sinna, Bjargi í Norðfirði, 11. júní 1938 og lést síðastliðinn mánudag, 8. júní, þremur dögum fyrir 88 ára afmæli sitt, á Landakotsspítala í Reykjavík eftir nokkurra vikna sjúkrahússvist.
Foreldrar Tryggva voru Fanny Kristín Ingvarsdóttir húsfreyja frá Ekru í Norðfirði og Gísli Kristjánsson útvegsbóndi frá Sandhúsi í Mjóafirði. Tryggvi var yngstur sex systkina. Ásdís, sem var næst yngst, er orðin níræð en eldri syskinin eru látin; Margrét (f. 1924), Ingvar (f. 1926), María (f. 1927) og Kristján (f. 1930). Á Norðfirði ólst Tryggvi upp til sjö ára aldurs þegar hann fluttist með foreldrum sínum og systkinum til Akureyrar.
Tryggvi var nemandi í Menntaskólanum á Akureyri frá hausti 1954 til vors 1958. Í skólanum hitti hann fyrir Margréti Eggertsdóttur, stúlkuna sem átti eftir að verða lífsförunautur hans og móðir sex barna þeirra hjóna. Margrét lifir eiginmann sinn til 67 ára.
Börn Tryggva og Margrétar eru 1) Arnheiður, 2) Eggert, kvæntur Rie Rosgaard, 3) Fanny Kristín, 4) Gísli, kvæntur Ingibjörgu Hlíðkvist Ingadóttur, 5) Tryggvi, kvæntur Láru Björg Björnsdóttur, 6) Sveinn, kvæntur Lindu Pálsdóttur. Barnabörn Tryggva og Margrétar eru 18 og barnabarnabörnin eru orðin sjö talsins.
Eftir stúdentspróf frá MA 1958 lá leið Tryggva í Háskóla Íslands þar sem hann lagði stund á íslensku og norræn fræði. Hann lauk meistararófi frá HÍ vorið 1968 og um haustið fluttust hjónin ásamt þremur börnum sínum búferlum til Bergen – Björgvinjar – í Noregi. Þar dvöldu þau í fjögur ár, Tryggvi stundaði nám í málvísindum og kenndi auk þess við skólann. Tryggvi var fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins frá 1962 til 1968 og fréttaritari Ríkisútvarpsins í Noregi frá 1968 til 1972.
Tryggvi Gíslason var skipaður skólameistari við Menntaskólann á Akureyri sumarið 1972, aðeins 34 ára að aldri. Því embætti gegndi hann til ársins 2003 fyrir utan fjögur ár, frá 1986 til 1990, þegar hann var deildarstjóri í skóla- og menningarmáladeild Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Tryggvi sat um tíma í bæjarstjórn Akureyrar fyrir Framsóknarflokkinn og í nefndum á vegum bæjarins þar sem hann sinnti m.a. skipulagsmálum og skólamálum.
Að leiðarlokum þakkar ritstjóri akureyri.net sínum gamla kennara og skólameistara áratuga vináttu.