Fara í efni
Fréttir

„Tökum Leif Arnar með og minnkum matarsóun“

Leifur Arnar er verkefni á vegum Vistorku í samstarfi við Akureyrarbæ sem snýst um að auka vitund um loftslags-, umhverfis- og auðlindaáhrif matarsóunar og umbúða fyrir matvæli.

„Markmiðið er annars vegar að minnka matar- og umbúðasóun á veitingastöðum með því að hvetja fólk til að taka með sér matinn (leifarnar) í samræmdum umbúðum sem mega fara í moltugerð. Hins vegar er stefnan að koma upp viðurkenningakerfi sem hvetur veitingastaði til að vinna samkvæmt loftslagsþrennunni; minnka matarsóun (Leifur Arnar), skila notaðri steikingarolíu í lífdísilgerð (Orkey) og tryggja að allur lífrænn úrgangur fari í jarðgerð (Molta),“ segir á vef Akureyrarbæjar.

„Leifur Arnar leit fyrst dagsins ljós fyrir nokkrum árum síðan í tilraunaskyni en nú er ætlunin að innleiða verkefnið á markvissan hátt á Akureyri sem síðan mætti útvíkka á landsvísu. Vistorka leitar því eftir formlegu samstarfi við veitinga- og matsölustaði á Akureyri um innleiðingu kerfisins. Nú þegar hafa nokkur fyrirtæki samþykkt að taka þátt, Majó, Orðakaffi og Backpackers, og er líklegt að fleiri bætist í hópinn á næstunni.“

Nánar hér á vef Akureyrarbæjar.