Fara í efni
Fréttir

Töfra-álfur SÁÁ seldur næstu daga

Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Þráinn Farestveit varaformaður ásamt Willum Þór Þórssyni ráðherra heilbrigðismála, fyrir miðju, en Willum kom í heimsókn til SÁÁ til að kaupa fyrsta Álfinn.

Fjöldi fólks á öllum aldri hefur tekið að sér að selja SÁÁ álfinn í Eyjafirði næstu daga. 

„Þar á meðal má nefna dugnaðarforka úr KA og sundfélaginu Óðni, svo og tíundu bekkinga í Glerárskóla og Oddeyrarskóla. Utan Akureyrar hafa Sober riders tekið að sér að vera á ferðinni með Álfinn. Á Dalvík sjá félagar úr sundfélaginu Rán um Álfasöluna. Líkt og áður stýrir Anna Hildur Guðmundsdóttir sölunni í Eyjafirði, en hún var kosin formaður SÁÁ fyrir skömmu,“ segir í tilkynningu frá SÁA.

Sölufólkið verður á ferð á fjölförnum stöðum næstu daga, m.a. í  verslunum og á bensínstöðvum. Þetta er í 34. skipti sem SÁÁ stendur að Álfasölunni, sem er ein mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna.

„Að þessu sinni er Álfurinn í gervi töframanns, sem er afar viðeigandi í ljósi þess að Álfasala SÁÁ hefur stuðlað að töfrum í lífi þeirra þúsunda sem hafa komið í meðferð hjá samtökunum gegnum árin. Að ekki sé talað um töfrana fyrir aðstandendur, vini, vinnuveitendur og þjóðfélagið allt.

Tekjurnar af Álfasölunni hafa einkum verið nýttar til að byggja upp rými og þjónustu fyrir ungt fólk og aðstandendur alkóhólista.

Sú mikla uppbygging sem SÁÁ hefur staðið fyrir í tæp 45 ár byggir alfarið á fjárhagslegum stuðningi landsmanna, sem hafa ávallt tekið vel í fjáraflanir samtakanna, ekki síst Álfinn.

Í heildina munu um 800 manns bjóða Töfra-Álfinn til sölu næstu daga á fjölförnum stöðum um land allt.“