Fara í efni
Fréttir

Þuríður Helga stýrir AkureyrarAkademíunni

Þuríður Helga Kristjánsdóttir, til vinstri, og Aðalheiður Steingrímsdóttir. Mynd af Facebooksíðu AkAk.

Stjórn AkureyrarAkademíunnar (AkAk) hefur ráðið Þuríði Helgu Kristjánsdóttur í starf framkvæmdastjóra AkAk og tekur hún við starfinu í byrjun ágúst nk. Fráfarandi framkvæmdastjóri er Aðalheiður Steingrímsdóttir sem gegnt hefur starfinu frá árinu 2020. Þetta kemur fram á Facebook síðu AkAk.

„Þuríður Helga hefur yfirgripsmikla og fjölbreytta reynslu af stjórnun og stefnumótun ásamt og verkefna- og viðburðastjórnun, en hún var framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar á árunum 2016-2022 og verkefna- og starfmannastjóri Norræna hússins í Reykjavík árin 2007-2015,“ segir í tilkynningunni.

Þuríður Helga er með MA í mannauðsstjórnun, diplómu í umhverfis- og auðlindafræði, diplómu í kennslufræðum og BA í myndlist. Samhliða því hefur hún sérhæft sig í og lagt stund á hugleiðslu og jóga um árabil.

„Undanfarið hefur Þuríður sinnt ólíkum störfum í gegnum fyrirtækið sitt Veglyndi, sem býður upp á námskeið, stjórnendaráðgjöf, fyrirlestra og vinnustofur. Í starfi sínu nýtir hún hugmyndafræði Inner Development Goals (IDG) og skapandi hugsun sem verkfæri til að takast á við persónulegar og samfélagslegar áskoranir, með nálgun sem byggir m.a. á kenningu U (Theory U).“