Fara í efni
Fréttir

Þota til Akureyrar og Egilsstaða í dag

Boeing 757 þota Icelandair. Mynd af vef fyrirtækisins.

Icelandair grípur til þess ráðs í dag að flytja farþega á milli Akureyrar og Reykjavíkur með Boeing 757 þotu félagsins og sömu sögu er að segja af flugi á milli höfuðborgarinnar og Egilsstaða.

Ferð á milli Akureyrar og Reykjavíkur í gærkvöldi var felld niður og aftur í morgun, svo og milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Ástæðan er tæknileg vandamál sem komu upp í tveimur vélum í innanlandsflota Icelandair að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Þessar ferðir Boeing þotunnar eru fyrirhugaðar í dag:

  • Reykja­vík - Ak­ur­eyri 16:30
  • Ak­ur­eyri - Reykja­vík 18:00
  • Reykja­vík - Eg­ilsstaðir 19:30
  • Eg­ilsstaðir - Reykja­vík 21:15

Í til­kynn­ing­unni segir að farþegum sem eigi bókað flug í dag en hafi ekki tök á að nýta sér þau sem getið er um hér að ofan sé boðin end­ur­greiðsla eða að breyta flugi sínu sér að kostnaðarlausu.