Fara í efni
Fréttir

Þórsarar byrjuðu með látum eftir fríið

Oddur Gretarsson gerði 11 mörk gegn Stjörnunni í gærkvöldi. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar unnu mjög sannfærandi sigur á Stjörnunni í gærkvöldi, 29:24, í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta – Olís-deildinni. Liðin mættust í Garðabæ og var þetta fyrsti leikur beggja eftir langt hlé vegna EM landsliða.

Með sigrinum fóru Þórsarar upp úr fallsæti; eru í þriðja neðst sæti, með 9 stig eins og Selfoss en með betri markatölu. ÍR-ingar eru neðstir með 5 stig. HK og Stjarnan eru næst fyrir ofan Þór með 10 stig.

Leikmenn Þórs  tóku forystu strax í upphafi leiks og héldu henni allt til enda. Munurinn jókst jafnt og þétt í fyrri hálfleik, að honum loknum var staðan 17:10 og mest munaði níu mörkum á liðunum þegar Þór komst í 21:12,  þegar tæpar 10 mín. voru liðnar af seinni hálfleik. Stjarnan náði aðeins að laga stöðuna en átti aldrei minnstu möguleika á að ógna sigri gestanna.

Oddur Gretarsson var frábær í sókninni hjá Þór og gerði 11 mörk úr 12 skotum. Hafþór Vignisson gerði fimm mörk og mataði félaga sína með góðum sendingum sem nokkrar teljast „stoðsendingar“ þar sem þær skiluðu mörkum.

Hafþór Vignisson, sem sækir hér að vörn KA fyrr í vetur, gerði fimm mörk í Garðabæ í gærkvöldi. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar eru í fallbaráttu og því er gríðarlega dýrmætt að vinna leik eins og í gær. Vitaskuld mæta menn í hvern leik til að sigra en mikilvægast er að hafa betur í viðureignum við önnur lið í neðri hluta deildarinnar.

Næsti leikur Þórs er gegn FH (4. sæti) á heimavelli næsta sunnudag, og síðan eru á dagskrá tveir afar þýðingarmiklir leikir á útivelli; föstudaginn 13. febrúar sækja Þórsarar HK (9. sæti) heim í Kórinn og laugardag 21. febrúar mæta þeir Selfyssingum (11. sæti) á Selfossi.

Mörk Þórs: Oddur Gretarsson 11 (þar af 4 úr víti), Hafþór Már Vignisson 5, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Halldór Kristinn Harðarson 3, Kári Kristján Kristjánsson 2, Hákon Ingi Halldórsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 1, Arnór Þorri Þorsteinsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 12 (34,3%), Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk Stjörnunnar: Benedikt Marinó Herdísarson 6 (þar af 1 úr víti), Hans Jörgen Ólafsson 4, Starri Friðriksson 4, Róbert Orri Arason 3, Jóhannes Bjørgvin 3, Gauti Gunnarsson 1, Aron Valur Gunnlaugsson 1, Loftur Ásmundsson 1, Atli Hrafn Bernburg 1.
Varin skot: Adam Thorstensen 15 (34,9%).

Öll tölfræði HB Statz

Leikskýrslan

Staðan í deildinni