Þórsarar áttu ekki roð í spræka Framara
Hvorki gengur né rekur hjá Þórsurum í efstu deild karla í knattspyrnu og í kvöld tapaði liðið enn einum leiknum. Að þessu sinni gegn Fram á útivelli og óhætt er að segja að 6:1 sigur Fram hafi síst verið of stór. Leikur Þórs var algerlega í molum og vandséð að liðið fái fleiri stig í sumar með svona frammistöðu.
Þórsarar áttu samt nokkra spræka spretti framan af leik og meðal annars blakaði Viktor Freyr Sigurðsson markvörður Framara boltanum yfir markið á 12. mínútu, eftir að Einar Freyr Halldórsson hafði reynt skemmtilega vippu úr þröngu færi. Framarar náðu hins vegar forystunni um miðjan fyrri hálfleik, eftir klaufagang hjá Þórsurum. Kristófer Kristjánsson rann til á vellinum þegar hann tók við sendingu frá Aroni Birki Stefánssyni markverði, Freyr Sigurðsson Framari hirti knöttinn, skeiðaði inn í vítateig og kom boltanum í netið framhjá Aroni.
Næsta korterið áttu Framarar þrjú góð færi eftir snöggar sóknir; Aron Birkir bjargaði tvisvar glæsilega og marksúlan einu sinni. Upp úr því færi fékk Fram hornspyrnu og Ægir Jarl Jónasson var sterkastur í loftinu og skallaði boltann í netið. Rétt á eftir fékk Fram aukaspyrnu skammt utan vítateigs en Aron Birkir varði glæsilega. Þórsarar náðu að minnka muninn með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks þegar Einar Freyr tók aukaspyrnu úti vinstra megin, sendi boltann inn í teig þar sem Sigfús Fannar Gunnarsson kom kollinum í knöttinn áður en Viktor Freyr kom aðvífandi. Boltinn var á leiðinni í netið þegar Ágúst Eðvald Hlynsson kom aðvífandi og hjálpaði honum inn.
Ekki stóð steinn yfir steini hjá Þór eftir hlé
Hafi einhver haldið að mark rétt fyrir leikhlé hafi virkað eins og vítamínsprauta fyrir Þórsara þá var ekkert fjær sanni. Framarar réðu lögum og lofum í seinni hálfleik og Þórsarar voru seinir, ósamstilltir, óákveðnir og baráttulitlir. Haraldur Einar Þorvarðarson skoraði tvisvar fyrir Fram á fyrsta stundarfjórðungi seinni hálfleiks og í bæði skiptin var hann á fjærstönginni og afgreiddi boltann í netið eftir fyrirgjöf frá hægri.
Fimmta markið kom á 71. mínútu þegar Jakob Byström sendi fyrir frá vinstri og Kristófer Konráðsson stakk sér framfyrir varnarmann og skoraði auðveldlega. Stuttu síðar skaut Byström boltanum framhjá markinu, gersamlega aleinn fyrir framan Aron í markinu. Hann bætti hins vegar um betur á 84. mínútu þegar hann fékk boltann utarlega í teignum eftir snögga sókn og þrumaði honum viðstöðulaust í netið.
Fimm marka sigur Framara var síst of stór og frammistaða Þórsara í kvöld var fullkomlega andlaus. Og það þótt Aron Einar Gunnarsson væri í liðsstjórninni á bekknum og ef hann getur ekki barið mönnum kraft í brjóst þá eru góð ráð dýr. Líklegt má telja að Þórsarar reyni að styrkja lið sitt töluvert í félagaskiptaglugganum sem verður opnaður eftir helgi, því eins og frammistaðan hefur verið í mörgum undanförnum leikjum á liðið ekkert erindi í deild þeirra bestu.
Í næsta leik bíður liðsins verðugt verkefni þegar Íslandsmeistarar Víkings koma í heimsókn á laugardaginn.