Fara í efni
Fréttir

KA tekur á móti ÍA – Þór sækir Fram heim

Myndir: Ármann Hinrik.

Dagur karlaliðanna í fótboltanum er í dag, bæði KA og Þór spila mikilvæga leiki, og auðvitað eru allir leikir mikilvægir, sér í lagi miðað við stöðu liðanna eins og hún hefur þróast, en Akureyrarliðin eru í 10. og 12. sæti Bestu deildar karla, tveimur af þremur neðstu sætunum.

Eftir sex tapleiki í röð er KA nú í 10. sæti Bestu deildar karla í knattspyrnu með tíu stig, tveimur stigum meira en FH og Þór sem sitja í fallsætunum. KA tekur á móti ÍA í dag. ÍA er sætinu fyrir ofan KA með 15 stig, en Skagamenn hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum.

  • Besta deild karla, 14. umferð
    KA-völlur (Greifavöllurinn sunnan við KA-heimilið – gervigras), kl. 18
    KA - ÍA

Þessi lið gerðu 1-1 jafntefli þegar þau mættust í Akraneshöllinni í 3. umferð deildarinnar í apríl.

- - -

Það er útileikur á dagskrá hjá Þór í dag, heimsókn í Úlfarsárdalinn þar sem Fram og Þór mætast á Lambhagavellinum, svokallaða. Að loknum 13 umferðum er Þór í 12. sætinu með átta stig, jafnmörg stig og FH en lakari markatölu. Fram er í 3. sæti deildarinnar með 27 stig að loknum.

  • Besta deild karla, 14. umferð
    Lambhagavöllurinn í Úlfarsárdal kl. 18
    Fram - Þór

Þór vann fyrri leik liðanna í 3. umferðinni, í fyrsta leik liðsins á nýjum gervigrasvelli í apríl, 1-0. Það er annar af tveimur sigurleikjum Þórs í deildinni hingað til og aðeins annar af tveimur tapleikjum Fram í mótinu til þessa.

Leikir 14. umferðarinnar

  • Sunnudagur 12. júlí
    kl. 18:00
    KA - ÍA
    Fram - Þór
    KR - ÍBV
    Kl. 20:05
    FH - Valur
  • Mánudagur 13. júlí
    Kl. 19:15
    Breiðablik - Keflavík