Fara í efni
Fréttir

Þór og Samskip semja áfram um Pollamótið

Þórunn Inga Ingjaldsdóttir frá markaðs- og samskiptadeild Samskipa og Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs, við undirritun samnings félaganna,

Íþróttafélagið Þór og Samskip hafa endurnýjað samning um samstarf um Pollamótið í knattspyrnu sem haldið er í júlí ár hvert. Þar koma eldri kynslóðir saman við knattspyrnuiðkun og leik.

„Pollamót Þórs eiga sér langa sögu sem nær allt aftur til 1987. Samstarf Þórs og Samskipa um Pollamótin hófst með fyrsta samstarfssamningi félaganna árið 2018. Samstarfið hefur verið afar farsælt og hefur Pollamótið borið nafn Samskipa undanfarin fimm ár - stundum nefnt Pollamót Þórs og Samskipa, stundum bara Pollamót Samskipa - og það samstarf hefur nú verið skjalfest til næstu þriggja ára með nýjum samstarfssamningi. Pollamót Samskipa verður því á sínum stað í júlímánuði 2023, 2024 og 2025 - og svo vonandi í mörg ár eftir það,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Þórs.

Reimar Helgason, framkvæmdastjóri Þórs, og Þórunn Inga Ingjaldsdóttir frá markaðs- og samskiptadeild Samskipa undirrituðu samninginn í Hamri, félags heimili Þórs.

„Íþróttafélagið Þór fagnar því mjög að hafa nú staðfest áframhaldandi samstarf við Samskip. Með öflugum bakhjarli er klárt að félagið og þátttakendur á mótunum munu áfram sigla sigrinum heim, með góðum stuðningi frá Samskipum,“ segir á heimasíðu Þórs.