Fara í efni
Fréttir

Þór 10. fórnarlamb firnasterkra Hauka

Hafþór Vignisson gerði sex mörk gegn Haukum í gærkvöldi. Mynd: Ármann Hinrik

Haukar eru enn óstöðvandi í efstu deild Íslandsmóts karla í handbolta, Olísdeildinni. Þeir hafa unnið 10 fyrsta leikina, þann síðasta í gærkvöldi þegar Þórsarar komu í heimsókn á Ásvelli í Hafnarfirði. Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfleik tóku Haukar völdin í þeim seinni og unnu með níu marka mun, 35:26,

Fyrri hálfleikur einkenndist af hraða, mikið var skorað framan af og mörkin voru orðin átta eftir rúmar fimm mínútur; staðan þá 4:4 en Haukar gerðu fjögur mörk í röð á næstu fimm mín. Komust í 8:4, Þórsarar minnkuðu muninn í eitt mark, 13:12 og 15:14 en munurinn var þrjú mörk í hálfleik, 17:14.

Haukar hertu tökin í seinni hálfleik og juku muninn jafnt og þétt. Sóknarleikur liðsins er fjölbreyttur, vörnin firnasterk og Aron Rafn lék mjög vel í markinu. KA-maðurinn í Haukaliðinu, Skarphéðinn Ívar Einarsson, var frábær í leiknum – gerði 12 mörk úr 15 skotum og þeir Darri Aronsson voru mjög öflugir í vörninni. 

Þórsarar léku að mörgu leyti prýðilegan sóknarleik í fyrri hálfleik en áttu í meiri erfiðleikum eftir hlé þegar Haukar þéttu raðirnar. Vörn Þórs var heldur ekki nóg góð til að ráða við öfluga sóknarmenn heimaliðsins – ekki frekar en varnir annarra mótherja Hauka hingað til. Vert er að nefna að Haukar gerðu átta mörk eftir hraðaupphlaup en Þórsarar aðeins tvö. 

Þess verður að geta að Þórður Tandri Ásgeirsson var illa fjarri góðu gamni annan leikinn í röð vegna meiðsla og Þórsarar söknuðu hans tilfinnanlega, bæði í vörn og sókn. Tandri er frábær línumaður, bregst nánast aldrei bogalistin þegar hann fær boltann á línunni og gerði til að mynda átta mörk úr níu skotum síðast þegar hans naut við, gegn Aftureldingu í lok október. Þórsarar gerðu ekkert mark af línu í gær.

Þór hefur nú tapað þremur leikjum í röð. Liðið hefur unnið þrjá leiki í deildinni en tapað sjö og er með sex stig eins og Víkingur og HK. Stjarnan er næst neðst með fimm stig og lið Selfoss neðst með eitt stig.

Mörk Þórs: William Skovager 7 (þar af 5 víti), Hafþór Már Vignisson 6, Bertram Simonsen 4, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Mikkel Bak Scheumann Jensen 2 Hákon Ingi Halldórsson  2 (bæði úr víti), Oddur Gretarsson 1, Jóhann Geir Sævarsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 16 (af 51) – 31%.

Mörk Hauka: Skarphéðinn Ívar Einarsson 12, Andri Fannar Elísson 8, Freyr Aronsson 5, Sigurður Jefferson Guarino 3, Hergeir Grímsson 3, Össur Haraldsson 2, Birkir Snær Steinsson 1, Daníel Máni Sigurgeirsson 1.

Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 16 (af 38) –  42%. Grétar Ari Guðjónsson 4 (af 8) – 50%.