Fréttir
Þjóðin hafnar ESB – NEI 52,8% – JÁ 47,2%
30.08.2026 kl. 09:30
Nei eða já? Kjósendur ganga inn og út af kjörstað, Verkmenntaskólanum á Akureyri. Mynd: Þorgeir Baldursson
Íslendingar höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Niðurstaðan varð sú að 52,8% (118.040) sögðu NEI en 47,2% (105.399) sögðu JÁ.
Kosningaþátttaka var 82,5% – alls greiddu 225.031 manns atkvæði. Auðir seðlar og ógildir voru 1.652 (0,7%).
Fleiri sögðu já í báðum Reykjavíkurkjördæmunum en fleiri sögðu nei í hinum kjördæmunum fjórum.
- Norðausturkjördæmi JÁ 38,8% – NEI 61,2%
Kjörsókn í Norðausturkjördæmi var 83,4%
Kjörsókn á Akureyri var 83,7% - Norðvesturkjördæmi JÁ 37,1% – NEI 62,9%
- Suðurkjördæmi JÁ 39,5% – NEI 60,5%
- Suðvesturkjördæmi JÁ 47,0% – NEI 53,0%
- Reykjavíkurkjördæmi suður JÁ 54,5% – NEI 45,5%
- Reykjavíkurkjördæmi norður JÁ 57,5% – NEI 42,5%