Fara í efni
Fréttir

Þjóðhátíðarfögnuður á Akureyri á morgun

Hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins verður í Lystigarðinum, á MA-túninu og næsta nágrenni, eins og síðustu ár. Dagskráin stendur frá kl. 13 til 17. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hæ hó jibbí-jei og allt það! Þjóðhátíðardagurinn er á morgun, og á Akureyri hefst hátíðardagskrá kl 13, og stendur til kl 17 í Lystigarðinum, á MA-túninu og í næsta nágrenni þess. Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með þjóðhátíðartónlist. Akstursleið blómabílsins má kynna sér HÉR!

Þau sem vilja hefja fögnuðinn á skrúðgöngu, mæta við Gamla húsmæðraskólann við Þórunnarstræti kl. 12.30. Skátafélagið Klakkur og Lúðrasveit Akureyrar leiða förina að venju, en gengið verður suður í Lystigarðinn þar sem hátíðardagskráin fer fram. Veðurspáin gæti verið betri, en hún gæti líka verið verri. Von er á 8-10 stiga hita, skýjum og mögulega einhverri rigningu.

Hátíðardagskrá í Lystigarðinum
13.00-14.00

  • Fánahylling
  • Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur
  • Bænagjörð og blessun: Eydís Ösp Eyþórsdóttir, djákni í Glerárkirkju
  • Kór Glerárkirkju undir stjórn Valmars Väljaots
  • Fjallkonan, Kolfinna Líndal Arnarsdóttir nýstúdent frá VMA
  • Ávarp bæjarstjóra: Ásthildur Sturludóttir

Fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum
14.00-17.00

  • 14.00 Eik Haralds & Guðjón
  • 14.20 Dansatriði frá Steps Dancecenter
  • 14.30 Tinna & Daníel Andri
  • 15.00 Drinni & The Dangerous Thoughts
  • 15.30 Dansatriði frá DSA Listdansskóla Akureyrar
  • 15.40 Hvolpasveitin
  • 16.20 Jónína Björt & Ívar Helga

Afþreying á MA-túni og víðar
14.00-17.00

  • Hoppukastalar
  • Andlitsmálning kl. 14.00-16.00
  • Frisbígolf með Frisbígolffélagi Akureyrar í Stefánslundi norðan við MA
  • Götukörfubolti með Körfuknattleiksdeild Þórs við íþróttahús MA
  • Hópleikir fyrir börn á öllum aldri á túninu vestan við heimavist MA & VMA
  • Sölutjald frá Skátunum
  • Skátatívolí
  • Matarvagnar

Blómabíllinn vekur jafnan mikla athygli hvar sem hann kemur. Hann ekur um bæinn á morgun; leggur af stað 11:00 frá Naustaskóla og keyrir um hverfi bæjarins. Mynd: Skapti Hallgrímsson