Tengill á Sauðárkróki kaupir Ljósgjafann
Rafverktaka- og rafmagnsfyrirtækið Tengill ehf. á Sauðárkróki, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga, hefur keypt Ljósgjafann ehf. á Akureyri, sem heldur úti svipaðri starfsemi og Tengill. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Hjá Tengli starfa að jafnaði um 100 manns og er félagið með starfsstöðvar á Sauðárkróki, Blönduósi, Hvammstanga, Akureyri, Þorlákshöfn og í Reykjavík. Velta Tengils á síðasta ári var nærri 1,8 milljarðar króna, samkvæmt ársreikningi.
Starfsmenn Ljósgjafans eru liðlega tuttugu og velta félagsins á síðasta ári var um 400 milljónir króna, samkvæmt ársreikningi. Félagið telst vera með sterka stöðu á Eyjafjarðarsvæðinu á sviði raf- og tæknilausna.
Hluthafar félagsins eru Jón Frímann Ólafsson, Lára Björk Kristinsdóttir og Randver Karl Karlsson, hver hluthafi á þriðjungs hlut.
Sóknarfæri
Gísli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Tengils, staðfestir kaupin. Hann segir að viðskiptin hafi verið send til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu, sem þarf að staðfesta kaupin.
„Með þessum kaupum sjáum við ýmis sóknarfæri enda er hér um að ræða tvö öflug fyrirtæki með afar hæft starfsfólk á sínu sviði. Bæði eru þessi fyrirtæki rótgróin og hafa þjónustað breiðan hóp viðskiptavina við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Þessi kaup styrkja reksturinn án efa. Ég hlakka því til að byggja upp enn frekari starfsemi á Akureyri. Sóknarfærin liggja sannarlega víða.“
Engum sagt upp
Gísli segir að öllum starfsmönnum Ljósgjafans verði boðið að starfa áfram gangi kaupin eftir. Eins og fyrr segir þarf Samkeppniseftirlitið að staðfesta kaupin formlega.

Höfuðstöðvar Tengils á Sauðárkróki. Mynd af vef fyrirtækisins.