Tæplega þrjú þúsund Akureyringar hafa kosið
Senn líður að kjördegi í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland skuli hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þegar einn dagur er til kosninga höfðu 2.989 kjósendur með lögheimili á Akureyri kosið utan kjörfundar.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefur staðið yfir frá 27. júlí, eða í réttan mánuð. Kjósendur geta enn greitt atkvæði utan kjörfundar, en hún er í höndum Sýslumannsins á Norðurlandi eystra.
-
Akureyri, Strandgötu 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorg), gengið inn um dyr á suðvesturhorni hússins. Í dag er hægt að kjósa utan kjörfundar kl. 10-18. Þá er opið á kjördag kl. 10-17. Kjósendur sem eru á kjörskrá á Akureyri geta þó einungis kosið þar utan kjörfundar fram að kjördegi.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum við kosninguna. Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á vef landskjörstjórnar.
Hvað gerist á kjördag?
Kjördagurinn sjálfur er laugardagurinn 29. ágúst. Kosning á Akureyri fer fram í Verkmenntaskólanum og stendur kjörfundur yfir frá kl. 9 að morgni til kl. 22 að kvöldi. Kjósendum ber að sýna persónuskilríki á kjörfundi; nafnskírteini, ökuskírteini eða vegabréf. Rafræn skilríki eru ekki tekin gild nema þeim sé framvísað í gegnum island.is appið.
Akureyrarkaupstað er skipt í 12 kjördeildir, þar af eru tíu í VMA, ein í Hríseyjarskóla og ein í Félagsheimilinu Múla í Grímsey. Skipting kjósenda í kjördeildir fer eftir búsetu samkvæmt skráðu lögheimili hjá Þjóðskrá þann 22. júlí 2026. Hægt er að fletta upp í kjörskrá á vef Þjóðskrár á slóðinni: www.kosning.is.
Kjósendum í Hrísey og Grímsey er bent á að kjörstað kann að verða lokað fyrr að uppfylltum skilyrðum 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Þeir eru því hvattir til að mæta á kjörstað fyrir kl. 17.00. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey verða þó að lágmarki opnir til kl. 17.30 nema allir á kjörskrá hafi kosið fyrir þann tíma.
Á kjördag hefur yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar aðsetur á bókasafni VMA. Aðsetur yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis verður einnig í Verkmenntaskólanum. Símanúmer yfirkjörstjórnar á kjördag er 854 1474. Að loknum kjörfundi kl. 22 kemur yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis saman í Brekkuskóla á Akureyri, til þess að hefja talningu atkvæða.
Í yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar eru þau Helga Eymundsdóttir, Júlí Ósk Antonsdóttir og Rúnar Sigurpálsson.
Í yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis eru þau Sigmundur Guðmundsson, Hildur Bettý Kristjánsdóttir, Sunna Axelsdóttir, Kristjana Bergsdóttir og Gestur Jónsson.