Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir
Fyrirtækið Sýn, sem áður hét Stöð 2, hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með morgundeginum, 1. september. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður því sendur út í kvöld og jafnframt verður hætt framleiðslu og útsendingu á Íslandi í dag. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar, í morgun. Hér er vitnað til umfjöllunar fréttavefjarins Vísis um málið, en Vísir er einnig í eigu Sýnar. Þar segir:
„Í tilkynningu sem var send starfsfólki kom fram að störfum hjá Sýn yrði fækkað, einkum meðal starfsfólks sem kæmi að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi.
Ákvörðunin er sögð tekin í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn muni því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil.
Þá segir að fréttastofa Sýnar mun áfram sinna fréttaþjónustu af fagmennsku og þróa miðlun frétta í takt við breyttar neysluvenjur landsmanna. Markmiðið er að styrkja fréttaþjónustu Sýnar á Vísi og Bylgjunni og tryggja um leið grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri.“
Stöð 2 hóf starfsemi árið 1986 og félagið hefur boðið upp á sjónvarpsfréttir allar götur síðan, í 40 ár.
51% auglýsingfjár til alþjóðlegra tæknirisa
„Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum fjölmiðlamarkaði undanfarin ár. Fréttaneysla hefur færst í auknum mæli frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla og samhliða því hefur tekjugrunnur innlendra fjölmiðla veikst,“ segir í frétt Vísis. „Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann 51% auglýsingafjár á Íslandi til alþjóðlegra tæknirisa árið 2024. Þetta hefur gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Tillögur stjórnvalda hafa ekki nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta þannig að þær geti breytt niðurstöðunni.“
- Nánar hér á Vísi: