Fara í efni
Fréttir

Sveitarfélögin hysji upp um sig buxurnar

Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) sem fram fór í gær og í dag lýsir yfir miklum áhyggjum með framkvæmd á útfærslu styttingar vinnuvikunnar hjá sveitarfélögunum um land allt. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar - Iðju í Eyjafirði, er formaður SGS.

„Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitafélögin vítt og breytt um landið hafa ekki sinnt verkefninu og fá algera falleinkun. Samantekin tölfræði sýnir að starfsfólk á skrifstofum semur um fulla styttingu án teljandi vandkvæða en starfsfólk í leik- og grunnskólum og slíkum störfum fái litla eða enga styttingu. Ríki og Reykjavíkurborg hafa staðið sig betur,“ segir í frétt á vef Starfsgreinasambandsins.

„Verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir því í áratugi að vinnuvikan verði stytt hjá launafólki. Í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög sem undirritaðir voru 2020 voru stigin þýðingarmikil skref til styttingar vinnuvikunnar,“ segir í fréttinni. Nefnt er að innleiðing þeirra breytinga í dagvinnu sem tóku gildi 1. janúar 2021 eigi nú að vera komin til framkvæmda. „Í þeirri vinnu skiptir öllu máli að opinberir vinnuveitendur standi við kjarasamninginn og tryggi launafólki þá styttingu sem um var samið,“ segir þar.

„Fundurinn skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin að hysja upp um sig buxurnar og standa við gerðan kjarasamning.“