Svalur en sólríkur ágúst á Akureyri
Nýliðinn ágústmánuður var fremur svalur á Akureyri en jafnframt bæði vætusamari og sólríkari en að jafnaði, samkvæmt nýju tíðarfarsyfirliti Veðurstofu Íslands. Meðalhiti mánaðarins var 9,8 stig, sem er einni gráðu undir meðallagi áranna 1991–2020 og 1,1 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára.
Úrkoma mældist 55 millimetrar á Akureyri í ágúst, um 33% yfir meðallagi. Úrkoma mældist einn millimetri eða meiri á átta dögum, sem er sami fjöldi og að jafnaði. Sólskinsstundir voru hins vegar 193,8, eða tæplega 56 stundum fleiri en í meðalári.
Norðan- og norðvestanáttir voru tíðar í mánuðinum en vindur var almennt hægur og veður að mestu gott. Hæsti hiti mánaðarins á landinu mældist 22,3 stig á Torfum í Eyjafirði 10. ágúst.
Gott sumar á Akureyri
Sumarið í heild, júní til ágúst, var hlýrra en í meðalári á Akureyri. Meðalhiti var 11,0 stig, hálfu stigi yfir meðallagi, og sumarið var það 25.–26. hlýjasta frá upphafi mælinga. Sólskinsstundir voru 564,9, eða 84,5 stundum fleiri en að jafnaði. Úrkoma sumarsins var 101,8 millimetrar, um 5% yfir meðallagi.
Fyrstu átta mánuðir ársins hafa einnig verið fremur hlýir á Akureyri. Meðalhitinn er 5,0 stig, 0,1 stigi yfir meðallagi, og tímabilið raðast í 31.–33. sæti yfir hlýjustu fyrstu átta mánuði ársins frá upphafi mælinga. Úrkoman, 304 millimetrar, er hins vegar í meðallagi.
Sumarið blautt fyrir sunnan
Í Reykjavík var ágúst einnig kaldari en í meðalári, en meðalhitinn var 10,6 stig, 0,5 stigum undir meðallagi. Þar mældist úrkoman 85,3 millimetrar, 32% yfir meðallagi, en sólskinsstundir voru 197,1, eða 32 stundum fleiri en að jafnaði.
Munurinn miðað við meðalár er enn meiri þegar sumarið í heild er skoðað. Í Reykjavík var meðalhiti sumarsins 10,7 stig, 0,2 stigum undir meðallagi, og úrkoman 246,2 millimetrar, eða 55% yfir meðallagi. Það var sjötta úrkomusamasta sumarið í Reykjavík frá upphafi mælinga. Sólskinsstundir voru hins vegar nánast í meðallagi, 539,9.