Fara í efni
Fréttir

Styttri afgreiðslutími Póstsins frá 1. ágúst

Eina pósthúsið á Akureyri styttir afgreiðslutímann frá og með 1. ágúst.

Frá og með næstu mánaðamótum mun afgreiðslutíminn á pósthúsinu á Akureyri styttast um klukkustund. Nú er opið frá klukkan 9.30 til klukkan 17, nema á föstudögum þá er opið klukkutíma styttra. 

Frá og með fyrsta ágúst verður hins vegar aðeins opið til klukkan 16 alla virka daga. Póstbox bæjarins verða hins vegar áfram opin allan sólarhringinn.

Um mánaðamótin verða sömu breytingar á afgreiðslutíma Póstsins á Selfossi og í Reykjanesbæ, skv. tilkynningu á vef fyrirtækisins.