Fréttir
Styrktartónleikar fyrir Úlfar Baldvin á morgun
23.03.2026 kl. 14:30
Styrktartónleikar verða haldnir í Samkomuhúsinu á Akureyri annað kvöld, fyrir Úlfar Baldvin, sex ára Dalvíking sem fyrr á árinu greindist með æxli í höfði og er byrjaður í meðferð í Svíþjóð. Úlfar Baldvin og fjölskylda hans eiga fyrir höndum langt og strangt ferli og tónleikarnir eru haldnir til að leggja fjölskyldunni lið. Allur ágóði af tónleikunum rennur bent til fjölskyldunnar.
- Tónleikar í Samkomuhúsinu hefjast kl. 20 annað kvöld, þriðjudagskvöld.
- Miðasala fer fram á netfanginu u.b.best@gmail.com.
- Miðaverð er 3.000 kr.
Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn. Þeim sem ekki sjá sér fært að koma en vilja leggja söfnuninni lið er bent á reikningsnúmer þar sem frjáls framlög eru vel þegin.
- Reikningsnúmer: 2200 - 15 - 081165
- Kennitala: 040395-3269
Eftirtaldir listamenn koma fram á tónleikunum að því er segir í tilkynningunni:
- Andrea Gylfa
- Arnþór Þorsteinsson
- Ágúst Brynjars
- Drottningar
- Hjalti Rúnar
- Magni Ásgeirs
- Níels Girerd
- Sólveig Guðmunds
- Svavar Knútur
- Tinna Óðins
- Urður Bergs
- Villi Braga