Fara í efni
Fréttir

Styrkir Jólaaðstoð í Eyjafirði um milljón

Verkalýðsfélagið Eining-Iðja styrkir Jólaðstoðina í Eyjafirði um eina milljón króna að þessu sinni. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Jólaaðstoðin er samstarfverkefni Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins á Akureyri. Markmið verkefnisins er að styðja efnaminni fjölskyldur og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu. Söfnunarfé sem safnast er meðal annars notað til kaupa á gjafakortum sem einstaklingar geta keypt mat fyrir. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu má gera ráð fyrir fleiri umsóknum í ár en undanfarin ár, segir á heimasíðu Einingar-Iðju.

Félagið hefur í mörg ár styrkt Jólaaðstoðina. Vegna stöðunnar í samfélaginu núna ákvað stjórn félagsins að bæta aðeins í og styrkja verkefnið um eina milljón króna. Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Fjallabyggð að Grenivík.