Styrkir í boði fyrir rafhleðsluinnviði
Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða á tveimur sviðum, annars vegar við fjölbýlishús og hins vegar við gististaði. Umsóknarfrestur vegna hleðslustöðva við fjölbýlishús rennur út í næstu viku en er til 15. október vegna uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði.
Húsfélög í fjöleignarhúsum geta sótt um styrki til framkvæmda við sameiginleg bílastæði og getur styrkur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði. Styrkhæf eru húsfélög í fjöleignarhúsum með átta íbúðir eða fleiri þar sem byggingarleyfi var gefið út fyrir 20. júní 2018. Ekki er veittur styrkur til húsa þar sem þegar hafa verið settar upp hleðslustöðvar á sameiginlegum bílastæðum.
Meðal þess sem hægt er að fá styrk fyrir eru lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum og framkvæmdir við stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishúss.
- Umsóknarfresturinn fyrir þessi verkefni er til 1. október klukkan 15.
Styrkir einnig í boði fyrir gististaði
Loftslags- og orkusjóður hefur jafnframt auglýst styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði víðs vegar um land. Markmiðið er meðal annars að fjölga gististöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðslu rafbíla og styðja þannig við orkuskipti í ferðaþjónustu.
Hótel og stærri gistiheimili með gilt rekstrarleyfi geta sótt um. Rekstraraðilar hleðslustöðva geta einnig sótt um í samstarfi við slíkan gististað.
Styrkur getur numið allt að 33% af styrkhæfum kostnaði, að hámarki einni milljón króna fyrir hvern gististað. Verkefnin þurfa að fela í sér uppsetningu á að minnsta kosti tveimur nýjum hleðslustöðvum, 2x 22 kW, og stöðvarnar þurfa að vera aðgengilegar gestum gististaðarins.
Aðeins ný verkefni koma til greina og mega framkvæmdir ekki vera hafnar þegar sótt er um. Styrkþegi skuldbindur sig jafnframt til að reka hleðslustöðvarnar í að minnsta kosti fimm ár frá gangsetningu.
- Umsóknarfrestur gististaða er til 15. október 2026 klukkan 15.
Í báðum tilfellum er sótt um styrkina gegnum vefsíðu Loftslags- og orkusjóðs á island.is.