Fara í efni
Fréttir

Stuttmyndakeppni fyrir nemendur í 7. bekk

Stuttmyndakeppni fyrir nemendur 7. bekkjar grunnskóla um land allt, Sexan, stendur nú yfir. Um er að ræða fræðsluverkefni sem snýst um að nemendur búa til þriggja mínútna stuttmynd sem skila þarf í síðasta lagi 28. janúar á vefnum 112.is/sexan

„Sexan er fræðsluverkefni sem ætlað er að fræða ungt fólk um birtingarmyndir stafræns ofbeldis. Viðfangsefni stuttmyndanna er tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna. Auk þess er opinn flokkur fyrir önnur mikilvæg málefni sem 12-13 ára krökkum þykja mikilvægt að lyfta upp,“ segir í tilkynningu frá Neyðarlínunni.

Stuttmyndirnar mega mest vera þrjár mínútur að lengd og hver skóli má mest senda þrjár stuttmyndir. Nemendur hafa frjálsar hendur með handritagerð, kvikmyndatöku og eftirvinnslu. Nemendur af erlendum uppruna, hinsegin og fatlaðir nemendur eru sérstaklega hvattir til að taka þátt.

Dómnefnd skipuð fulltrúum ungmennaráðs, RÚV, MMS og fulltrúa kvikmyndagerðar mun svo velja þrjár bestu myndirnar sem verða kynntar á vef UngRÚV. Formaður dómnefndar Sexunnar 2024 er kvikmyndaleikstjórinn Baldvin Z.

„Kjarni verkefnisins er að ungt fólk fræði ungt fólk. Þau eru best til þess fallin að varpa ljósi á þeirra veruleika og hvar helstu áskoranirnar leynast í daglegu lífi ungmenna. Verðlaunamyndirnar verða svo sendar í alla grunnskóla landsins sem fræðsluefni um stafrænt ofbeldi og getur þannig nýst þeim skólum sem ekki taka þátt sem og komandi kynslóðum,“ segir í tilkynningu

„Sexan er nú haldin í annað sinn en í fyrra sendu 27 skólar yfir 50 stuttmyndir. Sigurvegari 2023 var Selásskóli með stuttmyndina Friend Request, Heiðarskóli í Reykjanesbæ var í 2. sæti en Suðurhlíðarskóli var í 3. sæti. Vinningshöfum var síðar boðið að koma fram á NFBO, norrænni ráðstefnu um Ofbeldi gegn börnum sem var haldin á Hilton Nordica í maí 2023. Vinningsmyndirnar þrjár má finna bæði á Youtube rás Neyðarlínunnar og á vef Neyðarlínunnar: 112.is/sexan en þar má einnig finna frekari fræðslu um viðfangsefnin, innsendingargáttina og góð ráð fyrir stuttmyndagerð.“

Sexan er forvarnar- og fræðsluverkefni breiðrar fylkingar samstarfsaðila sem öll láta sig lýðheilsu ungmenna varða: Neyðarlínan, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Jafnréttisstofa, Barna- og fjölskyldustofa, Fjölmiðlanefnd, Samskiptafulltrúi íþrótta- og æskulýðsstarfs, Ríkislögreglustjóri, Menntamálastofnun og RÚV.

Sexan stuttmyndakeppni (112.is)