Fréttir
Stutt „nótt“ að degi til – MYNDBAND
12.08.2026 kl. 20:30
Mynd: Hilmar Friðjónsson
Almyrkvi á sólu var sjáanlegur víða á vestanverðu landinu í dag, miðvikudag, en deildarmyrkvi átti að vera sjáanlegur annars staðar. Í Eyjafirði sást reyndar ekki til sólar því alskýjað var laust fyrir sex í kvöld, þegar myrkvinn náði hámarki, en upplifunin var engu að síður mögnuð. Í um það bil eina mínútu rökkvaði svo mjög að svartamyrkur var á svæðinu – a.m.k. nam myndavélin ástandið þannig. Engu líkara en skollin væri á niðdimm nótt, en síðan birti ótrúlega snögglega aftur.
Hilmar Friðjónsson var með myndavélar sínar yfir í Vaðlaheiði og tók meðfylgjandi myndskeið. Hér er það ekki sýnt á raunhraða heldur mun hraðar til þess að sýna betur breytinguna á birtunni. Og Hilmar segir rétt að taka fram að augað venst minni birtu betur en myndavélin gerir og því sé dimmasti partur myndbandsins mun dekkri en það sem augu fólks námu.
- Smellið á myndina til að sjá myndskeið Hilmars
- Ríkissjónvarpið hefur verið með umfangsmikla umfjöllun um almyrkvann - smellið hér til að sjá
