Fara í efni
Fréttir

Strætó byrjar að aka um Hagahverfi um helgina

Ljósmynd: Ragnar Hólm Ragnarsson

Strætisvagnar Akureyrar hefja akstur um hið nýja Hagahverfi syðst og efst í bænum næsta sunnudag, 22. maí Leiðir 5 og 6 fara um hverfið og hefur hver leið því lengst um 4 mínútur. Tímatöflur hafa því breyst lítilsháttar, einkum á leið 5. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Ekki verður gefin út leiðabók en nálgast má allar upplýsingar um strætóleiðir hér á Akureyri.is, í strætó-appinu og á straeto.is

Tilkynningar um frávik á akstri eru birtar á Facebook-síðu SVA og á straeto.is.

Vegna framkvæmda í miðbænum hefur endastöð strætisvagna verið færð frá Nætursölunni yfir götuna og er nú sunnan við BSO.