Fréttir
Stórfelld líkamsárás – tveir í gæsluvarðhaldi
11.04.2026 kl. 14:40
Ráðist var á mann í heimahúsi á Akureyri í fyrrinótt, hann er ekki í lífshættu en þó er til rannsóknar hvort um tilraun til manndráps var að ræða. Tveir voru handteknir í dag grunaðir um aðild að málinu.
Svohljóðandi tilkynning var birt á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra:
Unnið er að rannsókn á stórfelldri líkamsárás sem átti sér stað í heimahúsi á Akureyri.
Aðfaranótt föstudagsins 10. apríl leitaði maður á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Maðurinn bar stunguáverka og þurfti hann að undirgangast skurðaðgerð þar sem gert var að sárum hans. Maðurinn er ekki í lífshættu.
Tveir aðilar voru handteknir grunaðir um aðild að málinu. Í dag úrskurðaði héraðsdómur Norðurlands eystra aðilana tvo í gæsluvarðhald í viku.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og naut aðstoðar tæknideildar LRH við vettvangsrannsókn og sérsveitar RLS við handtökur. Til rannsóknar er hvort um tilraun til manndráps sé að ræða.