Fara í efni
Fréttir

Stór og góður þorskur veiðist á Dohrnbanka

Björgvin EA við bryggju í Grundarfirði. Mynd af vef Samherja.

Stór og góður þorskur veiðist nú á Dohrnbanka, djúpt vestur af landinu. Þar hefur íslenski togaraflotinn ekki stundað veiðar í háa herrans tíð, enda svæðið aðallega þekkt fyrir rækjuveiði.

Í síðasta mánuði, þegar aflabrögð voru slök á hefðbundnum bolfiskmiðum, ákváðu forráðamenn Samherja að senda Björgvin EA á bankann, sem margir hafa án efa heyrt getið í fréttum, og það reyndist góð ákvörðun. „Skemmst er frá því að segja að aflabrögðin voru góð, stór og vænn þorskur,“ segir á vef Samherja.

Íslenskum skipum fjölgaði hratt á þessum slóðum í kjölfarið, enda fiskisagan fljót að fljúga innan greinarinnar.

Ásgeir Pálsson skipstjóri á Björgvin segir að íslenski flotinn veiði við miðlínuna milli Grænlands og Íslands, rúmlega 100 sjómílur vestur af Látrabjargi. Björgvin landaði fullfermi í Grundarfirði og er aflanum ekið til vinnslu á Akureyri og Dalvík.

Meðalvigtin rúm sex kíló

„Þetta var annar túrinn okkar. Sá fyrri gekk vel, við vorum tvo og hálfan sólarhring að fylla skipið og í þessum túr tók svipaðan tíma að fylla. Þetta er stór þorskur og greinilega vel haldinn, lifrin er stór. Meðalvigtin hjá okkur var 6,2 kíló og í nokkrum holum allt að sjö kílóum. Mest tókum við 18 tonn en reyndum að hafa á bilinu 10 til 12 tonn í holi til þess að afurðirnar verði sem bestar og verðmætastar. Það er ekki nóg að fiska sem mest, gæðin skipa mestu og þar með aflaverðmætið,“ segir skipstjórinn á vef Samherja.

Ásgeir segir að á svæðinu geti verið allra veðra von. „Það getur verið hauga helvítis sjór í norð-austan áttinni. Öldurnar eru ansi krappar og stutt á milli þeirra enda er straumurinn þungur. Annars hefur veðrið verið ágætt á okkur í þessum tveimur túrum, fyrir utan fyrsta sólarhringinn en þarna er líka hafís sem getur verið varasamur,“ segir Ásgeir.

Ölfusáin eins og bæjarlækur!

Á vef samherja segir ennfremur: Talandi um sterka strauma, þá fellur stærsti foss heims skammt SA af veiðislóð skipanna en það er kaldur djúpsjór sem kemur úr norðurhöfunum og flæðir með botninum fram af háum hrygg þarna í Grænlandssundi.

Þessi mikla straumbuna er um 3 miljónir rúmmetra á sekúndu (m3/s) með fallhraða upp á 55 sentimetra á sekúndu, til samanburðar fer Ölfusá fram með 400 rúmmetra á sekúndu (m3/s) sem er mesta rennsli íslenskra áa. Ölfusáin er þess vegna eins og bæjarlækur.

Haft er eftir Ásgeiri: „Menn hafa verið að velta þessu fyrir sér, hvort þetta er Grænlandsþorskur sem kemur úr grænlenskri lögsögu og hrygnir síðan í Breiðafirði en það er sem sagt ekki vitað nákvæmlega á þessari stundu. Ég hef heyrt tilgátur í talstöðinni um þetta en sjálfsagt kemur hið sanna í ljós með tíð og tíma.“

Nóg að gera í landi

„Það er um fimmtán klukkustunda stím á Grundarfjörð og flutningabílarnir aka svo hráefninu norður í Eyjafjörð til vinnslu. Það hafa fleiri skip frá Samherja og ÚA verið á þessum slóðum og veitt vel, þannig að landvinnslan hefur úr nógu að moða þessa dagana, enda veitir ekkert af eftir tregt fiskerí á undanförnum vikum,“ segir Ásgeir Pálsson skipstjóri á Björgvin EA.