Fara í efni
Fréttir

Stöðvum ofbeldi gegn konum strax!

Árlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst á heimsvísu í dag. 

„Markmiðið er að vekja athygli á þeirri staðreynd að ofbeldi gegn konum er útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum og að hvetja til umræðu og vitundarvakningar meðal almennings um að hafna öllu kynbundnu ofbeldi og að knýja á um afnám þess,“ segir í tilkynningu frá Soroptimistaklúbbi Akureyrar, Zontaklúbbi Akureyrar og Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu sem standa fyrir átakinu á Akureyri eins og undanfarin ár.

„Bæði konur og karlar verða fyrir kynbundnu ofbeldi en konur og stúlkur eru samt yfirgnæfandi meirihluti þolenda. Kynbundið ofbeldi á sér djúpar rætur í samfélagi og menningu og er ein af verstu birtingarmyndum kynjamisréttis. Tölur sýna að í kjölfar Covid-19 er mikil aukning á ofbeldi gegn konum og stúlkum hér á landi sem og annars staðar í heiminum og þá sérstaklega heimilisofbeldi. Einangrun kvenna á heimilum með gerendum og rofið stuðningskerfi er skuggafaraldur Covid-19. Stöndum saman um að rjúfa þagnarmúrinn um kynbundið ofbeldi og stuðlum að vitundarvakningu um að við sem samfélag eigum að hafna því,“ segir í tilkynningunni.

Til að vekja athygli á 16 daga átakinu verða nokkur áberandi mannvirki á Akureyri lýst upp með appelsínugulum lit; Ráðhúsið, Hof, Samkomubrúin, Listasafnið, Glerárkirkja og Menntaskólinn að því er segir í tilkynningu. Ekkert þeirra hafði að vísu verið lýst upp í kvöld en það stendur án efa til bóta.

Átakið stendur til 10. desember. Þangað til verður röð hádegisfyrirlestra í Háskólanum á Akureyri á vegum Mannréttindaskrifstofu Íslands Meðan á átakinu stendur verður röð rafrænna hádegisfyrirlestra á vegum Háskólans á Akureyri. Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar þar um.

Á vefsíðu UNWOMEN eru frekari upplýsingar