Fara í efni
Fréttir

Stöðugildum ríkisstarfa fjölgaði um 53 á Akureyri

Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, mun fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar „Hvar eru ríkisstörfin 31.12.2025?“ á rafrænum föstudagsfundi SSNE. Mynd: SSNE.
„Hvar eru ríkisstörfin?“ er yfirskrift föstudagsfundar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) sem hefst á hádegi á föstudag. Fundurinn er rafarænn og öllum opinn.
 
Á fundinum kynnir Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, nýja greiningu stofnunarinnar á staðsetningu ríkisstarfa. Þar kemur fram að hægt hefur á fjölgun stöðugilda á vegum ríkisins, en þróunin er ólík eftir landshlutum, að því er fram kemur í frétt á vef SSNE. Þar segir að í árslok 2025 hafi ríkisstöðugildi verið 29.139 og hafði þeim fjölgað um 103 frá fyrra ári. Mest fjölgaði á Suðurlandi, um 80 stöðugildi, en næstmest á Norðurlandi eystra, um 68. Þar af bættust 53 stöðugildi við á Akureyri. Um 70% ríkisstöðugilda eru enn á höfuðborgarsvæðinu.
 
Þorkell mun fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar Hvar eru ríkisstörfin 31.12.2025? og ræða hvað tölurnar segja um dreifingu opinberra starfa.
 
Skýrsluna má lesa á vef Byggðastofnunar - sjá hér.
 
Fundurinn er rafrænn á Teams og öllum opinn, og hægt að tengjast honum hér.