Fara í efni
Fréttir

Stjörnuapótek verður Stjörnubarinn

Apótek var lengi til húsa í Hafnarstræti 95 en nú er verið að undirbúa opnun á ölstofu þar.

Nýr bar verður opnaður í göngugötunni á Akureyri. Barinn verður í Hafnarstræti 95 í húsnæði þar sem Stjörnuapótek var á sínum tíma og nú síðast Apótekarinn. Það er myndlistarmaðurinn og sauðfjárbóndinn Vikar Mar Valsson sem stendur að verkefninu ásamt samstarfsaðilum.

Samkvæmt fundargerð skipulagsráðs Akureyrarbæjar gengur verkefnið undir nafninu Stjörnubarinn og eru ekki gerðar athugasemdir við að gefið verði leyfi fyrir rekstri ölstofu í rýminu að uppfylltum öllum öryggis- og heilbrigðiskröfum.

Áætlað er að staðurinn geti hýst allt að 250 manns en fara þarf í töluverðar breytingar á húsnæðinu til að það henti starfseminni. Samkvæmt tillöguteikningu er gert ráð fyrir nýjum inngangi í rýmið, stórum bar, sófasvæði og tveimur veitingasölum. Annar salurinn getur hýst 175 manns en hinn 75 manns.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vikar Mar kemur nálægt veitingageiranum en hann hefur m.a. tekið þátt í veitingarekstri á Eyri á Hjalteyri og í Bjórböðunum á Árskógssandi. 

Vikar Mar og kærasta hans Katla Karlsdóttir hafa sinnt list sinni á sameiginlegri vinnustofu á Hjalteyri. Þess má geta að í menningarhúsinu Hofi stendur nú yfir sýning á verkum Vikars.