Fara í efni
Fréttir

„Stefnum á Norðurland“ í Hofi á fimmtudaginn

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Ráðstefnan Stefnum á Norðurland verður haldin á fimmtudaginn, 24. nóvember, í Hofi á Akureyri.

Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður greiningar KPMG á þörf fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum, sérstaklega með tilliti til aukinna umsvifa flugfélaga um Akureyrarflugvöll.

Auk þess verða haldin erindi um fjárfestingu og uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi, markaðssetningu áfangastaðarins gagnvart erlendum flugfélögum. Nokkur norðlensk ferðaþjónustufyrirtæki munu segja frá sínum fjárfestingum og verkefnum sem eru í bígerð.

Ráðstefnan, sem hefst klukkan 13.00 og lýkur kl. 15.30, verður í beinni útsendingu á Facebook síðu MN.

Dagskrá:

  • Markaðsstofa Norðurlands – Hvað er framundan í flugmálum?
  • Ferðamálastofa – Tölur um ferðahegðun
  • Íslandsstofa – Erlend markaðssókn
  • KPMG – Þörfin fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum
  • Norðlensk fyrirtæki – fjárfestingar og uppbygging:
    • Niceair
    • Skógarböðin
    • Jarðböðin
    • Höfði Lodge