Fara í efni
Fréttir

Sóttkví á Asparhlíð og Beykihlíð

Íbúar Asparhlíðar og Beykihlíðar, á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri, eru komnir í sóttkví eftir að starfsmaður á Asparhlíð greindist með kórónuveirusmit á laugardaginn. Lokað er fyrir allar heimsóknir á deildina þar til niðurstöður úr sýnatöku laugardaginn 30. október liggja fyrir. Til að gæta ítrustu varúðar er einnig lokað fyrir heimsóknir á Beykihlíð.

Búið er að upplýsa íbúa, aðstandendur og starfsmenn um stöðuna, skv. upplýsingum á vef Heilsuverndar - hjúkrunarheimila. Aðgerðir á deildunum hafa ekki áhrif á aðra starfsemi, segir þar.