Fara í efni
Fréttir

Sóley verkefnastjóri hjá Rauða krossinum

Sóley Björk Stefánsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Rauða krossins við Eyjafjörð og hefur hún störf í byrjun maí.

„Sóley er með BA gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri og hefur lokið kennslufræðum til kennsluréttinda frá sama skóla. Sóley hefur starfað undanfarin ár sem bæjarfulltrúi á Akureyri og hefur því til viðbótar afar fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu og ýmis konar félagsstarfi,“ segir í tilkynningu frá Rauða krossinum.

„Sóley er Rauða krossinum vel kunnug, en undanfarin ár hefur hún starfað sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum við Eyjafjörð og sinnt þar ýmsum verkefnum. Var hún m.a hópstjóri yfir verkefninu Opið hús þar sem innflytjendur fengu aðstoð. Jafnframt var hún sjálfboðaliði í Lautinni – athvarfi fyrir fólk með geðraskanir og íslenskuvinur. Sóley hefur jafnframt sinnt tímabundnum hlutastörfum hjá Rauða krossinum sem starfsmaður í farsóttarhúsi, verkefnafulltrúi málefna flóttafólks og verkefnastjóri unglingastarfs Rauða krossins í Reykjavík.“